Færsluflokkur: Dægurmál
18.8.2007 | 13:43
Deildarleikur á þriðjudag
Næstkomandi þriðjudag, 21. ágúst, leikur Puma í 8. umferð Utandeildarinnar. Puma heimsækir þá Dufþak á gervigrasvelli Aftureldingar í Mosfellsbæ.
Dufþakur hefur leikið sex leiki í deildinni í sumar og hefur náð 13 stigum úr þeim viðureignum, með markatöluna 15:7. Liðið sigraði Pungmennafélagið í fyrstu umferð 4-0. Því næst sigraði liðið Dinamo Gym 60 2-0. Í þriðju umferð tók liðið á móti Vatnaliljum og endaði sá leikur með tveggja marka sigri Dufþaks, 2-0. Liðið náði svo jafntefli við Elliða með jöfnunarmarki tæpum tíu mínútum fyrir leikslok, 1-1. Vængir Júpíters gjörsigruðu Dufþak í fimmtu umferð deildarinnar, 2-5. Í sjöttu umferð lagði lið Dufþaks Hjörleif með fjórum mörkum gegn einu, 4-1.
Þess má geta að Dufþakur féll út úr sextán liða úrslitum Bikarsins á móti komandi andstæðingum Puma, Kumho, 0-2.
Á undirbúningstímabilinu lék Puma við Dufþak og sigraði 0-5. Þó má ekki vanmeta liðið því það hefur verið að spila vel það sem af er sumri. Liðið hefur ná hagstæðum úrslitum við lið á borð við Hjörleif og Elliða, liðum sem Puma hefur ekki gengið með á leiktíðinni.
Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 19:00. Mæting 45 mínútum fyrir leik eða 18:15, eins og áður kom fram, við gervigrasvöll Aftureldingar í Mosfellsbæ.
- Nefndin
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2007 | 16:01
Arnar að blómstra
Arnar Halldórsson leikmaður Puma er á sínu þriðja ári hjá félaginu. Arnar sem var fengin frá Moppunni á frjálsri sölu hefur verið að spila gríðarlega vel á líðandi tímabili. Það virðist ekki skipta máli í hvaða stöðu leikmaðurinn spilar, hann leysir þær allar með stakri prýði. Arnar hefur spilað í sumar bæði í vörn og á miðju, og lék til að mynda sinn fyrsta leik með Puma í stöðu hafsents í fjarveru Vigfúsar í leik Puma og Hjörleifs nú á dögunum.
Arnar hefur spilað nánast alla leiki Puma á tímabilinu og skorað tvö mörk, en annað þeirra og það fyrra var sérstaklega glæsilegt. Það var í leik á móti Vatnaliljum, en þá tók Arnar boltann um þrjá metra frá miðjum teig og negldi knettinum í markhorn andstæðingana.
Í sumar hefur Arnar, auk þess að spila með liði Puma, leikið með heldri liði HK. Þar hafa komið saman hluti af eldri mönnum Puma og náð sér í leikæfingu og styrk í skemmtilegum leikjum í Old Boys deild KSÍ. Þar eins og með liði Puma hefur Arnar vart stigið feilspor.
Arnar er fæddur og uppalinn í Vesturbæ Kópavogs og hóf snemma að leika knattspyrnu. Fyrstu árin lék hann með Breiðablik við hlið ekki ómerkri manna en nafna sínum Arnars Grétarssonar og Ásgeirs Baldurs. Seinna flutti Arnar sig um set og spilaði með liði HK-inga.
Bæði bróðir og frændi Arnars leika einnig með Puma. Það eru þeir Þórhallur Halldórsson og Annel Helgi Finnbogason. Ritstjórn fullyrðir það að ekki séu mörg lið í Utandeildinni, eða í hinum íslensku deildum almennt, sem hafa leikið með þrjá leikmenn úr sömu fjölskyldu í liði sínu. Þá má ekki gleyma Benedikt Nikulási Ketilssyni sem er annar leikmaður Puma og hægri hönd Arnars í nánast einu og öllu sem hann tekur sér fyrir. Oft hefur Benedikt verið nefndur systirin í áðurnefndu frænderni, en Benedikt hefur verið fastagestur á heimili fjölskyldunnar í um 30 ár.
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt 18.8.2007 kl. 16:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.8.2007 | 09:08
Leikið í Fagralundi
Ritstjórnarfulltrúi var mættur í Fagralund í gærkveldi þegar Puma fékk skemmtilega heimsókn. Leikmenn FC Ice voru mættir til að etja kappi við Puma í æfingarleik fyrir komandi átök bæði í deild og bikar.
Leikmenn Puma tóku leikinn strax í sínar hendur og hófu leik með skemmtilegum sóknartilþrifum þar sem liðið drottnaði á miðju vallarins. Leið ekki á löngu þangað til Annel Helgi Finnbogason skoraði fallegt mark með skoti úr teig, 1-0. Sókn Puma hélt áfram og leit mark tvö dagsins ljós nokkrum mínútum seinna þegar Vesteinn Gauti Hauksson setti boltann í markið af stuttu færi eftir góða sendingu frá Viðari Inga Péturssyni, 2-0. Þá var eins og sparkað hafi verið í afturenda leikmanna Ice þar sem liðið skoraði tvö mörk, 2-2. Ice áttu nokkur góð færi til viðbótar en Guðmundur Magnús Sigurbjörnsson, markvörður Puma, varði vel.
Seinni hálfleikur fór vel af stað hjá Puma. Ívar Guðmundsson skoraði snemma fallegt mark og kom Puma í 3-2. Vésteinn skoraði fjórða mark Puma og sitt annað í leiknum nokkrum mínútum seinna, 4-2, en áður hafði hann átt glæsilegt skot utan úr teig sem small í slá Ice manna. Rétt eins en áður þá kröfsuðu leikmenn Ice í bakkann og náðu að skora mark eftir óskipulag í varnarleik Puma, 4-3. Ekki leið á löngu þangað til Árni Þór Eyþórsson, sem hefur verið á skotskónum að undanförnu, skoraði skallamark eftir fallega fyrirgjöf af vinstri væng, 5-3. Það voru svo leikmenn Ice sem áttu síðasta orðið í leiknum og skoruðu sitt fjóra mark, en þá var flautað til leiksloka, lokatölur í ágætis leik, 5-4.
Byrjunarliðið var skipað eftirfarandi leikmönnum:
Guðmundur
Þórhallur - Ívar G. (F) - Gunnar
Annel - Benni - Árni - Viðar- Varði
Vésteinn - Böðvar
Bekkur: Már J., Brynjólfur, Viktor, Gulli
Mörk: Veddi 2, Annel, Ívar G., Árni
Áminning:
Maður leiksins: Maður leiksins að þessu sinni er heildin. Leikmenn Puma spiluðu á köflum góðan bolta, létu knöttinn líða milli manna og sköpuðu mörg færi. Fimmtán leikmenn Puma voru mættir til leiks og ætti þetta að hafa verið góð æfing fyrir leik Puma og Dufþaks á þriðjudag, 21. ágúst.
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.8.2007 | 00:20
Puma Premier League
Fyrir þá ykkur sem gaman hafa af Ensku Knattspyrnunni og telja sig hafa sæmilega haldbæra þekkingu á henni, höfum við sett af stað Puma-deildina í Fantasy Football. Eins og e.t.v. nokkrum er kunnugt er Fantasy Football engilsaxneska heitið á því sem við eyjaskeggjar höfum kallað Draumaliðs-leikurinn. Þetta er nokkurs konar Manager leikur þar sem þú ert stjóri liðs sem þú velur og hefur til 100 miljónir punda. Allir leikmenn Ensku Úrvalsdeildarinnar (e. Premier League) standa þér til boða og eru misjafnlega verðlagðir miðað við aldur og fyrri störf. Leikurinn stendur út tímabilið, alls 38 umferðir, og snýst um að fá sem flest stig frá sínum leikmönnum. Allar útskýringar, reglur og upplýsingar er að finna á fantasy.premierleague.com, þar sem einnig er hægt að skrá sig í leikinn. Að skráningu lokinni slærðu inn kóðann fyrir Puma-Premier, og hókus pókus, það er komin keppni.
Þessi leikur hefur notið mikilla vinsælda hjá knattspyrnuáhugamönnum, og hafa íslendingar um 2.000 stjóra á skrá í tilteknum leik. Það kann þ.a.l. að vera að nokkrir ykkar hafi þegar skráð sig og eru t.d. í "vinnustaða-deildinni" o.s.frv. Þá er einfalt mál fyrir ykkur að slá inn kóðan til að taka einnig þátt í Puma-Premier.
Vefslóð: fantasyfootball.premier.com
Kóði: 938858-174085
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.8.2007 | 16:48
Dregið í bikar
Í dag rétt eftir hádegi var dregið í bikarkeppni Utandeildarinnar. Var það gert í beinni útsendingu hjá Valtý Birni í þættinum Mín skoðun á X-inu 977, en komnir voru til hans meðlimir úr stjórn deildarinnar.
Eftirfarandi er dráttur dagsins:
Kumho Rovers - Puma
CCCP - Vatnsberar
Elliði - Bygg
Vængir Júpíters - Nings
Eitt er klárt að framundan eru spennandi leikir. Fyrst ber að nefna leik Kumho og Puma.
Khumo vermir fimmta sæti B riðils og hefur leikið sex leiki á tímabilinu. Liðið hefur unnið tvo, gert þrjú jafntefli og tapað einum leik, 9 stig, með markatöluna 11:9.
Leiðin í undanúrslitin:
Kumho 4 2 Geirfuglar
Kumho 2 0 Dufþakur
Puma vermir fimmta sæti A riðils og hefur leikið sjö leiki á tímabilinu. Liðið hefur unnið þrjá, gert eitt jafntefli og tapað þremur leikjum, 10 stig, með markatöluna 16:11.
Leiðin í undanúrslitin:
Puma 3 2 Metró
FC Dragon 2 3 Puma
CCCP vs. Vatnsberar
CCCP vermir þriðja sæti B riðils og hefur leikið fimm leiki á tímabilinu. Liðið hefur unnið fjóra, og tapað einum, 12 stig, með markatöluna 14:5.
Leiðin í undanúrslitin:
FC Moppa 0 5 Fc CCCP
Fc CCCP 1 0 FC Fame
Vatnsberar vermir áttunda sæti B riðils og hefur leikið fimm leiki á tímabilinu. Liðið hefur unnið tvo, gert eitt jafntefli og tapað þremur, 7 stig, með markatöluna 7:7.
Leiðin í undanúrslitin:
Vatnsberar 7 2 Áreitni
G&T 4 5 Vatnsberar
Elliði - Bygg
Elliði vermir fjórða sæti A riðils og hefur leikið sex leiki á tímabilinu. Liðið hefur unnið þrjá, gert tvö jafntefli og einum leik, 11 stig, með markatöluna 9:6.
Leiðin í undanúrslitin:
Elliði 2 0 RC Collins
TLC 1 3 Elliði
BYGG vermir fjórða sæti C riðils og hefur leikið sex leiki á tímabilinu. Liðið hefur unnið þrjá, gert tvö jafntefli og einum leik, 11 stig, með markatöluna 16:10.
Leiðin í undanúrslitin:
BYGG 4 0 Pungmennafélagið Gulla
Kóngarnir 0 2 BYGG
Vængir Júpíters - Nings
Vængir Júpíters verma annað sæti A riðils og hefur leikið fimm leiki á tímabilinu. Liðið hefur unnið fjóra og gert eitt jafntefli, 13 stig, með markatöluna 24:2.
Leiðin í undanúrslitin:
Ernirnir 1 5 Vængir Júpiters
Vængir Júpiters 3 0 Hjörleifur
Nings verma sjöunda sæti B riðils og hefur leikið sex leiki á tímabilinu. Liðið hefur unnið tvo, gert eitt jafntefli og tapað þremur leikjum, 7 stig, með markatöluna 7:7.
Leiðin í undanúrslitin:
Hómer 2 4 Nings
FC Keppnis 0 3 Nings
Eins og áður segir þá eru spennandi leikir framundan. Leikið verður á völlum Aftureldingar og á Ásvöllum þann 2. september næstkomandi.
Spá ritstjórnar:
Kumho Rovers - Puma 2CCCP - Vatnsberar 1
Elliði - Bygg 1
Vængir Júpíters - Nings 1
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2007 | 13:34
Framtíð Árna í uppnámi ?
Þessir svokölluðu umboðsmenn eru að ganga að þessari íþrótt dauðri. Þetta eru afætur og sníkjudýr sem svífast einskis til að sjúga út krónur og aura. Fótboltinn er í algjöru aukahlutverki og ég stórefast um að þessi tiltekni maður Edgar whats-his-name hafi svo mikið sem séð einn leik hjá Árna. Sagði Böðvar myrkur í máli við hlandskálina á Dússa-bar.
Ég hafði ekki heyrt neitt frá Árna sjálfum um að hann væri á nokkurn hátt ósáttur við sitt hlutskipti hjá félaginu. Við í þjálfarateyminu höfum sýnt honum mikla þolinmæði, og nú þegar hann er loksins að springa út ..(rop) ..afsakið ...þá nei nei kemur þessi Edwin þarna inn í dæmið með ekkert nema heimtufrekju og tilætlunarsemi. Hann má þakka fyrir að ég rétti honum ekki einn í andl... HEY (blístur) þú Bína ...einn tvöfaldan Tanqueray í Tab . Og við þetta kvöddum við Böðvar.
Mikill hiti var á fundinum og þurftu starfsmenn kráarinnar í þrígang að ganga í milli manna. Athygli vakti hvursu frjálslega var farið með áfengi, í ljósi þess að Puma á leik í kvöld við FC Ice. Edgar og Árni fengu lögreglufylgd út úr bænum en Böðvar gisti fangageymslur Lögreglunnar í Borgarnesi. Ekki náðist á Hermann Guðmundsson stjórnarformann vegna málsins.
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2007 | 09:21
Æfing - ar - leikur
Seint í gærkvöldi, miðvikudag, var ákveðið að skella á æfingarleik í kvöld, fimmtudag. Í stað hinnar hefðbundnu æfingar klukkan 19:30, mætir FC Ice í Fagralund og spilar við lið Puma. Æfingarleikur þessara sömu liða átti að fara fram í síðustu viku, en forföll FC Ice urðu til þess að Puma lék við Nings.
FC Ice leikur í C riðli Utandeildarinnar og trónir þar á toppnum. Eftir sex leiki hefur liðið náð í 14 stig, með fjórum sigrum og tveimur jafnteflum. Taplaust í deild, en liðið féll úr bikar í fyrstu umferð á móti FC Keppnis.
Kjörið tækifæri til að fínstilla leik Puma og prófa nýja hluti.
Mæting 19:10.
- Nefndin
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.8.2007 | 13:21
Heldrimanna bolti
Sex Púmur tóku þátt í sérverkefni í gærkvöldi þar sem HK-heldri léku þriðja leik sinn í old-boys deildinni gegn Þrótturum í Laugardal. Leikið var á grasi í 2x35 mínútur. HK-ingar voru alls 13 talsins og þar af voru 6 leikmenn sem leika einnig með Puma að öllu jöfnu. Benedikt, Böðvar, Árni, Arnar, Viðar og Þórhallur hófu leikinn með þeim svartklæddu. Leikurinn var vægast sagt lítið fyrir augað og greinilegt að æfingin á sunnudag og leikurinn á mánudag sat svolítið í mönnum. Þróttarar komust í 2-0 og leiddu þannig þar til um 10 mínútur lifðu leiks. Þá virtist sem HK-ingar hafi fundið auka orku og hugmyndaflug og sköpuðu sér góð færi sem skiluðu 2 mörkum. Árni Þór Eyþórsson hélt áfram viðteknum hætti frá leiknum við Hjörleif, og setti annað markana. Árni og Viðar sýndu svo fínan samleik í tvígang sem skilaði opnu færi og víti sem Sigurður HK-ingur afgreiddi örugglega. Lokastaðan 2-2, leikur sem fer í reynslubanka okkar manna sem skemmtileg viðbót og fín æfing.
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.8.2007 | 11:07
Ósæmileg hegðun eða saklaust spaug ?
Á undan leik okkar á mánudag var vægast sagt athyglisverð viðureign í gangi. Vængir Júpíters öttu kappi við Kóngana. Skemmst frá því að segja var sá leikur algjörlega einhliða, lokatölur 17-0 fyrir Vængina. Menn voru margir hverjir furðu lostnir yfir þessum úrslitum, enda höfðu Kóngarnir fyrir þennan leik unnið 3 leiki og tapað 3, með markatöluna 16-12.
Á umræðuvefnum hefur þetta verið skeggrætt og dúkka þar upp misjafnar skoðanir á þessu eins og gengur og gerist. Hinsvegar er þar einnig að finna aðdróttanir í garð leikmanns okkar og virðulegt nafn klúbbsins dregið upp úr drullu þar af leiðandi. Eftirfarandi er klippt út úr pistli frá leikmanni Kónga sem kallar sig Hlynz:
Svo að lokum ætla ég minnast á einn leikmann Puma sem var að hita upp á hliðarlínunni undir lok leiksins. Hann virtist fara á leikskólaaldurinn með að hrópa og kalla inn á völlinn eins og leikmenn Kónga væru 5 ára. Það er nógu erfitt að halda ærunni eftir svona flengingu og að menn skuli fara á svona plan með hrópum og köllum að leikmönnum sýnir hversu grunnt er á mönnum. Ég bað viðkomandi um að sýna virðingu, ekkert annað. Fyrir svona eiga menn að skammast sín - ekkert annað!
Ef til vill er hér um að ræða mann sem eðlilega er gríðarlega svekktur með frammistöðu sinna manna, og kann illa að taka gagnrýni eða jafnvel gríninu sem þessu fylgir. Ritstjórn Puma bloggsins leikur hinsvegar forvitni á að vita hver þessi umræddi leikmaður er og hvaða orð sá hinn sami lét falla sem særðu blygðunarkennd Hlynz ?
Sjá má umræðuna á spjallinu hér.
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.8.2007 | 11:59
Tvö mörk Árna dugðu ekki til
Það var blíðskaparveður í Fagralundi í gærkvöldi þegar Puma fengu Hjörleif í heimsókn í 7. umferð A-riðils. Puma mættu með ríflega 17 manna hóp til leiks gegn sterku liði Hjörleifs. Búast mátti við hörkuleik þar sem bæði lið voru staðráðin að blanda sér alvarlega í toppbaráttuna. Það voru skörð fyrir skildi að þrír sterkir varnarmenn voru fjarverandi og þ.á.m. hafsentaparið úr síðasta leik, Vigfús og Evert. Leikurinn hófst af miklum krafti og ljóst var að tempó-ið yrði hátt í þessum leik. Eitthvað voru Puma-liðar værukærir fyrstu 10 mínúturnar og gengu Hjörleifs-menn ákveðnir á lagið og sóttu í við meira. Leikurinn jafnaðist eftir það og mikil barátta og návígi einkenndu leikinn nánast frá 1. mínútu. Báðum liðum gekk frekar illa að halda bolta innan liðs, en færin létu samt ekki á sér standa, sem komu aðallega uppúr skyndiupphlaupum og löngum sendingum fram.
Það mátti glögglega sjá að vörnin hafði ekki sama yfirbragð og oft áður, en stóðu engu að síður af sér mörg skyndiáhlaup andstæðinganna. Puma gerðu sig seka um að fara í það að koma boltanum fram sem fyrst með löngum sendingum í stað þess að fara í gegnum miðjuna. En með okkar sterku framherja Ívar og Vedda skapar það oft mikinn usla í vörn mótherjanna. Árni, Veddi og Arnaldur fengu fín færi í fyrri hálfleik til að koma Puma yfir en inn vildi tuðran ekki. Svo gerðist hið óumflýjanlega þegar færin eru ekki nýtt gegn betri liðum, okkur var refsað með marki. Eiríkur G. Helgason kom gestunum yfir á 25. mínútu. Þetta kom Puma í opna skjöldu og aðeins 4 mínútum síðar þurfti Þorleifur að hirða boltann aftur úr markinu. Valgeir Einarsson var þar að verki og virtust Puma menn hálf slegnir eftir þennan 5 mínútna kafla. Eftir svona leikleysu er eina svarið að girða í brók og minnka muninn. Það gerðu heimamenn svo sannarlega og skoruðu fallegt mark á 33. mínútu eftir gott samspil og stungusendingu. Árni Þór Eyþórsson gerði engin mistök einn á móti annars ágætum markverði Hjörleifs og skilaði boltanum örugglega framhjá honum. Staðan 1-2 fyrir gestunum í hálfleik.
Mikil barátta og barningur var í seinni hálfleik þar sem liðin skiptust á að ógna með reglulegu millibili. Vésteinn Gauti Hauksson fékk kjörið tækifæri til að jafna fyrir heimamenn en fast skot hans af stuttu færi glumdi í þverslánni. Puma fengu fleiri færi í síðari hálfleik en eins og svo oft áður voru þeir lánlausir fyrir framan mark andstæðinganna. Þá gerðist það sama og í þeim fyrri, að liðinu var refsað fyrir að nýta ekki færin. Baldvin Ólafsson setti Hjörleif í ansi vænlega stöðu með marki gegn gangi leiksins á 60. mínútu. Heimamenn spýttu í lófanna og reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn. Liðið þurfti að sækja á fleiri mönnum, sem á móti skapaði iðulega hættu á skyndisóknum Hjörleifs. Þegar 10 mínútur lifðu leiks báru sóknartilburðir Puma árangur þegar Árni Þór skoraði sitt annað mark af harðfylgi. Leikurinn var galopinn síðustu mínútunar og gat mark fallið báðu megin. Gestirnir héldu þó út og uppskáru öll stigin. Þriðja tap Puma staðreynd.
Þrátt fyrir þessar ófarir eru Puma í 5. sæti og aðeins þremur stigum frá sæti í úrslitakeppni þegar þrír leikir eru eftir. Liðið er hvergi nærri úr leik í baráttunni !!
Byrjunarlið:
Þorleifur
Gunnar - Hilmar - Alexander - Arnar
Arnaldur - Benni - Árni - Már Þ.
Ívar - Vésteinn
Bekkur: Viðar, Annel, Magnús, Már J., Jón, Böðvar, Guðmundur
Maður leiksins: Árni Þór Eyþórsson. 2 góð mörk og hársbreidd frá því að setja þrennuna. (sem var í sjálfu sér mjög illa unnð)
- Ritstjórn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)