Færsluflokkur: Dægurmál

Góð mæting

Góð mæting var á fyrstu æfingu Puma á árinu 2008 sem fram fór í Kórnum í Kópavogi í gærkveldi. Fjórtán voru mættir. Nokkuð jafnt var meðal liða fram eftir tímanum en þó varð af því að annað liðið sigraði. Hér fyrir neðan er tafla með mætingu og sigrum gærkveldsins, en í vetur verður þessari töflu haldið "up to date".

Leikmenn  fá 1 stig fyrir að mæta og 3 stig fyrir að vinna. Ef menn láta vita að þeir komi ekki á æfingu fá þeir einnig 1 stig.

 - Nefndin

 

Mæting

Sigur

Mætingarhlutfall

Sigurhlutfall

Árni

1

3

100%

100%

Viddi

1

3

100%

100%

Gummi

1

3

100%

100%

Jón Helgi

1

3

100%

100%

Haukur

1

3

100%

100%

Þórólfur

1

3

100%

100%

Gunni

1

3

100%

100%

Böddi

1

0

100%

0%

Ívar G

1

0

100%

0%

Jón Ingi

1

0

100%

0%

Már J.

1

0

100%

0%

Vinur Gumma

1

0

100%

0%

Benni

1

0

100%

0%

Maggi E.

1

0

100%

0%

Alexander

1

0

100%

0%

Varði

1

0

100%

0%

Arnar

1

0

100%

0%

Þórhallur

1

0

100%

0%

Viggi

0

0

0%

0%


Haldið um stig í vetur

statistikkurvaÍ vetur verður sú nýjung að haldið verður utan um mætingar leikmanna á æfingar. Þá verður mætingarlisti birtur á heimasíðu Puma. Auk þess verður haldið utan um tölfræði þeirra sem vinna leiki á æfingunum. Leikmenn koma til með að fá 1 stig fyrir að mæta og 3 stig fyrir að vinna. Ef menn láta vita að þeir komi ekki á æfingu fá þeir einnig stig. Í lok æfinga í Kórnum verða svo tímarnir gerðir upp.

Það verður sem sagt haldið utan um sigurhlutfall leikmanna og mætingarhlutfall.

 - Nefndin


Leikmannahópur í janúar

LiðsmyndNú eru hjólin farin að snúast aftur hjá Puma eftir langt og gott hlé. Leikmenn hafa verið ólmir að fara hreyfa sig aftur og sprikla í bolta.

Eftirfarandi aðilar eru leikmenn Puma tímabilið 2008:

Alexander Arnarsson
Arnaldur Schram
Arnar Halldórsdórsson
Atli Már Daðason
Ámundi Steinar Ámundason
Árni Þór Eyþórsson
Benedikt Nikulás Ketilsson
Brynjólfur Schram
Böðvar Jónsson
Evert Víglundsson
Guðmundur Magnús Sigurbjörnsson
Gunnar Sigurðsson
Hallgrímur Guðmundsson
Haukur Eiríksson
Hermann Guðmundsson
Hilmar Þór Ólafsson
Hreiðar Þór Jónsson
Ívar Guðmundsson
Jón Ingi Bergsteinsson
Kristján Ragnar Kristjánsson
Magnús Egilsson
Már Jóhannsson
Már Þórarinsson
Valgeir Bergmann
Vésteinn Gauti Hauksson
Viðar Ingi Pétursson
Vigfús Jóhann Þórisson
Þorleifur Óskarsson
Þorvarður Björgúlfsson
Þórhallur Halldórsson


Æfingar hefjast

Æfingar Puma hefjast á morgun, þriðjudaginn 8. janúar, klukkan 21:00.Korinn
Puma æfir í Kórnum, glæsilegustu knattspyrnuhöll landsins í vetur.

 
Á heimasíðu KSÍ segir:

 
Húsið er einkar glæsilegt og mun nýtast knattspyrnumönnum sem og knattspyrnuáhugamönnum vel í framtíðinni og verður aðstaða fyrir allt að 2000 áhorfendur í höllinni.

Aðrar helstu upplýsingar: 

  • Stærð hússins 10.998 m2 ásamt 3.459 m2 tengibyggingu
  • Rúmmál 192.951 m3
  • Húsið er fulleinangrað og hitað með fullkominni lofthitun/loftkælingu
  • Knattspyrnuvöllurinn er 105 x 68 m að stærð
  • Field Turf gervigras frá Metrathon, 60 mm einsþráða (monofibre), fyllt með sandi og grænu gúmmíi efst
  • Undir gervigrasinu eru lagnir til hitunar og kælingar
  • Húsið uppfyllir alla keppnisstaðla Alþjóða knattspyrnusambandsins FIFA
  • Lofthæð 20 m undir bita í mæni og meira en 10 m yfir hliðarlínur
  • Frjálsíþróttaaðstaðan er þrjár 100 m brautir beggja vegna vallarins og fjórar 70 m brautir til endanna, lögð 15 mm þykku rauðu gerviefni frá Field Turf
  • 120 lampar (natríum og kvikasilfur) lýsa höllina upp
  • Lýsing uppfyllir alþjóðlegar kröfur FIFA og sjónvarpsstöðva vegna útsendinga
  • Í húsinu er sambyggt hljóð- og brunakerfi
  • Í lofti eru gataðar stálplötur til hljóðeinangrunar og loftræsting um gafla og þak
- Nefndin.

Gleðilegt ár

Ritstjórn og framkvæmdastjórn Puma óskar leikmönnum, áhangendum og landsmönnum öllum gleðilegs árs.

Árið 2008 er árið sem dollan kemur heim.

 


Æfingar

Framkvæmdastjórn Puma, hefur beðið ritstjórn að koma eftirfarandi á framfæri. Unnið er hörðum höndum þessa dagana að ganga frá æfingartímum Puma fyrir komandi tímabil. Viðræður standa yfir bæði við Fífuna sem og Kórinn, hinni nýju knattspyrnuhöll Kópavogs.

Stefnt er að því að byrja æfingar í fyrstu viku nóvember.

Nánari upplýsingar um æfingartíma seinna.

- Ritstjórn


Laugardagskvöld - Lokahóf !!!

SM112~Drunken-People-Crossing-PostersTakið kvöldið frá !

Dagskrá byrjar 20:00 !

Nánari upplýsingar síðar !

 - Nefndin


Æfing - Fagrilundur í kvöld kl. 19:30

svangur

Látið það ganga og rekið á eftir mönnum. Tökum gott og hressandi sprikl ! Höfum allir miklu meira en gott af smá súrefnisinntöku og svita.  Svo þarf að fara aðeins yfir þetta með "lokahófið"  - Fjölmennum !


- Gaurinn sem var einu sinni ritstjóri.


Puma vs. TLC - Neyðarfærsla

Sunnudaginn 16. september næstkomandi er leikur Puma og TLC. Leikurinn verður háður á velli Fylkis í Árbæ og hefst hann á slaginu 19:30.

Framkvæmdarstjórn hefur beðið um að koma því á framfæri að mæting er stundvíslega 18:45.

Því miður verður ekki frekar fjallað um þennan leik að svo stöddu, vegna manneklu á ritstjórn.

 - Afleysingarritstjórn

UPDATE:

LEIKURINN FER FRAM Á FRAMVELLI Í SAFAMÝRI !!!!!


Atvinna - Ritstjóri

ExecEditor_logoStaða Ritstjóra hjá netmiðlinum puma.blog.is er laus til umsóknar.  

Um er að ræða 50% starf yfir vetrartímann (off-season) fram að páskum ´08. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi  Puma ehf. við Stéttarfélög.

Hæfniskröfur:

-  Yfir meðalgreind.
-  Gott vald á íslensku og rituðu máli.
-  Áhuga á knattspyrnu, utandeild og þjóðmálum.
-  Þekkja til í herbúðum Puma.
-  Reynsla af fréttaskrifum æskileg en ekki nauðsynleg.

Menntun:
- Æskileg

Umsækjendur vinsamlegast leggið fram nafn og símanúmer í athugasemdir.
Umsóknarfrestur er til  26. September næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað.

- Starfsmannastjóri.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband