Færsluflokkur: Dægurmál
29.6.2007 | 15:04
Bikarinn - staður & stund
Staðfestur hefur verið leiktími og völlur fyrir 1. umferð í bikar. Puma drógst gegn Metró úr B-riðli og verður viðureignin háð á Fylkisvelli þann 15. júlí kl. 21:00. Andstæðingarnir tróna á toppi síns riðils með fullt hús stiga úr þremur leikjum, þannig að búast má við hörkuleik strax í 1. umferð. Á síðustu leiktíð féll Puma úr Bikarnum gegn Strumpum á Tungubökkum, þar sem sigurmarkið kom af 30 metra færi á 80. mínútu. Það tap þótti sérlega ósanngjarnt og kom markið algjörlega gegn gangi leiksins. Leiktíðina 2005 fór Puma alla leið í úrslit gegn Melsteð í Egilshöll. Að loknum leik var staðan jöfn 1-1, og grípa þurfti til vítaspyrnukeppni þar sem Puma þurfti að játa sig sigraða. (Alexander & Jón Gunnar fokkuðessupp)
Nú förum við alla leið, fjandinn hafi það !!!
- Ritstjórn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2007 | 16:58
Hvar er Gunnar ?
Í einkaviðtali við Puma bloggið þann 21. þessa mánaðar kemur meðal annars fram að Gunnar fljúgandi hollendingur Sigurðsson muni mæta til æfinga þann 25. júní. Hinsvegar bólaði ekkert á Gunnari það kveldið, og ekki hefur náðst á hann né umboðsmann leikmannsins síðan. Hér er klárlega um samningsbrot að ræða og ljóst að stjórnin mun taka kauða all grimmilega á teppið.
Þetta er nú tiltölulega þekkt meðal afríkubúa í knattspyrnuheiminum, að menn láti sig nánast hverfa eftir frí og mæta ekki til æfinga á tilsettum tíma. Gunnar er búinn að vera AWOL* í nokkra daga núna, en vonandi tilkynnir hann sig inn sem allra fyrst. Það er nú fyrir öllu að allt sé í lagi hjá drengnum, og að þetta eigi sér ekki alvarlegar orsakir. Við komum til með að heyra ástæður Gunnars fyrir þessu og bregðast við á sanngjarnan og viðeigandi hátt ...ef hann er yfirleitt á lífi blessaður Sagði Böðvar Jónsson í símaviðtali nú síðdegis.
*Orðskýring: AWOL (Absent Without Official Leave) hugtak úr hernaði notað um liðhlaupa.
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt 29.6.2007 kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.6.2007 | 15:03
Takmarki náð
Leikurinn við Vatnaliljur sem fara átti fram á Tungubökkum þann 5. júlí hefur verið færður. Leikið verður í Fagralundi á þjóðhátíðardegi Bandaríkjamanna, miðvikudaginn 4. júlí kl. 19:30 . Þetta ætti að vera mönnum fagnaðarefni, minnugir leiksins gegn Pungmennafélaginu á Tungubökkum. Breytingin var einróma samþykkt af málsaðilum og dómari (Kobbi) hefur þegar verið bókaður. Það má því segja að nú sé komið að fyrsta alvöru heimaleik liðsins.
Ég held að flestir sem hafa spilað upp í Mosó séu sammála um það að því færri leikir sem þar eru leiknir því betra. Þetta er einfaldlega ekki sama íþróttin við þessar aðstæður sem þar er boðið uppá. Sagði aðstoðarþjálfari Puma, Hreiðar Þ. Jónsson að þessu tilefni.
- Ritstjórn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.6.2007 | 14:29
Allt að gerast
Stjórnin hefur ráðist í það verkefni að reyna eftir fremsta megni að skrásetja sögu Puma í grófum dráttum. Það er m.a. fólgið í því að fá fram helstu tölfræði yfir titla, leikmenn, fjölda leikja, stærsti sigur og tap, markaskorun o.s.frv. En sagan verður ekki aðeins í máli heldur myndum einnig. Þegar hefur okkur borist sending af óborganlegum myndum frá fyrri tíð, sem sjá má hér í myndaalbúmi á vinstri hlið síðunnar. Við viljum endilega hvetja þá sem eiga Puma myndir að deila þeim með okkur og lesendum síðunnar.
Einnig liggur sú tillaga á borðinu að verðlauna sérstaklega fyrir heiðursnafnbótina maður leiksins. Eðlilega ætti mönnum að vera það nægur heiður að hljóta þessa virðulegu nafngift. En við viljum að sjálfsögðu gera enn betur. Ef tillagan fæst samþykkt mun Maður leiksins hér eftir hljóta í verðlaun Freyðivínsflösku, og mun puma.blog.is krefjast viðtals að því tilefni að leik loknum.
- Framkvæmdastjórn Puma
Dægurmál | Breytt 28.6.2007 kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2007 | 11:14
Tvær æfingar í viku
Puma í samvinnu við HK heldri hafa bætt við æfingu og verða nú tvær æfingar í viku. Æfingin sem bætt hefur verið við er á fimmtudögum.
Eftirfarandi eru æfingartímar Puma:
Mánudagar 21:30
Fimmtudagar 19:30
Æfingin ætti að vera góð viðbót fyrir bæði Puma og HK en gríðarlega góð mæting hefur verið á æfingar í sumar eða um og yfir 20 manns.
Þó ber að hafa í huga að á fimmtudag í næstu viku (5. júlí) eigum við leik kl. 20:30 á Tungubökkum við Vatnaliljur. Næstu tveir leikir í deildinni á eftir viðureigninni við Liljurnar, eru föstudagsleikir skv. leikjaniðurröðun
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.6.2007 | 16:13
Er Már enn stríðshrjáður?

Þegar rætt var við Má var hann staddur við Le Meridien-hótelið í Beirút í aðeins 3-5 km fjarlægð frá þeim svæðum þar sem Ísraelar höfðu látið sprengjur falla í massavís.
Már kom heim viku seinna og var ánægður við komuna heim, en þess má geta að Már og félagar komust ekki heim á tilsettum tíma. Hann sagði Íslendingana hafa verið komna í rúturnar þegar þeim var sagt að yfirgefa þær. Norðmenn gengu fyrir. Már sagði það hafa verið hrikalegt að horfa á eftir rútunum keyra burt.
Þegar heim var komið nýtti Már sér stuðning og áfallahjálp liðsfélaga og kom sterkur inn í fyrsta leik eftir komuna frá Damaskus. Hann viðurkenndi þó á þeim tímapunkti að hann væri enn nokkuð stríðshrjáður.
Már sem spilað hefur 3 leiki fyrir Puma á leiktíðinni hefur ekki ennþá skorað mark fyrir liðið. Því spyr ritstjórn Puma.blog.is sig....... Er Már ENN stríðshrjáður?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2007 | 13:35
Vigfús dansar til að gleyma
Fréttastofu hefur borist til eyrna fregnir af því að varnarmaðurinn síkáti Vigfús Jóhann Þórsson sé aldeilis ekki allur þar sem hann er séður. Reyndin virðist vera sú að Viggi hafi sér annað og merkilegt áhugamál sem nefnist á engilsaxnesku C-walk og er eins konar afbrigði af skrikkdansi (breakdance) og kraftgöngu. Áhugamenn um dansmenningu segja að þetta fari eins og eldur um sinu í dansheiminum og sé að verða mjög útbreidd meðal ungmenna í Evrópu. Vigfús Jóhann þykir heldur betur liðtækur í þessari grein, og heldur m.a. úti heimasíðu þar sem hann sýnir tilþrif sín í C-walk. Ég tók uppá þessu fyrir um 2-3 árum, okkur var að ganga ekkert allt of vel í boltanum þá, lítið um æfingar og mætingin oft dræm. Ég fann að ég þurfti eitthvað annað og meira til að svala hreyfifíkn minni og datt inn á námskeið í Kram-húsinu í kjölfarið. Sagði Vigfús.
Við leituðum álits atvinnumanns í dansi, og þar voru hæg heimatökin því Árni Þór Eyþórsson miðvallarleikmaður Puma starfar m.a. sem kennari hjá dansdeild Breiðabliks. Árni vildi meina að Vigga væru allir vegir færir í dansinum, enda sérlega mikill alhliða íþróttamaður með metnaðinn og keppnisskapið sem fleytir honum langt í hverju sem hann tekur fyrir hendur. Eftir að hafa skoðað myndskeiðið sem hér er meðfylgjandi, gapti danskennarinn af undrun yfir hæfileikum Vigfúsar. drengurinn hreyfir sig eins og engill, það er hrein unun að horfa á kauða.
Já það er svo sannarlega margt og merkilegt sem liðsmenn Puma taka sér fyrir hendur utan knattspyrnunnar. Ritstjórn væri þakklát fyrir fleiri svona ábendingar um merkilegar athafnir og áhugamál leikmanna.
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2007 | 10:09
Æfing snýst upp í hörkuleik !
Það voru alls 22 leikmenn sem mættu til æfinga í Fagralundi í gærkvöld. Eins og gefur að skilja var skipt í tvö lið, og uppúr varð æfingaleikur á milli HK (heldri) og Puma. Tveir nýir leikmenn voru on trial hjá Púmunum, ættaðir úr 2. flokki Breiðabliks. Eðlilega hrundi meðalaldurinn all hressilega niður og kom okkur e.t.v. undir 30 árin, og er það hið bezta mál. Aðstæður voru hreint út sagt glimrandi sem oftast áður, bongó-blíða og völlurinn einn af bestu á landinu leyfum við okkur að segja. Nú skemmst frá því að segja sigruðu hinar ellefu hugrökku Púmur með nokkrum yfirburðum, lokatölur 1-7. Þess má geta að Böðvar Jónsson brá út af vananum að þessu sinni og lék í framlínu Puma bróðurpart leiksins . Skilaboð liðsfélaga voru skýr: "snáfaðu aftur í markið drengur!". En sem sagt gríðarlega skemmtileg æfing í glampandi kvöldsól og logni. Afar sérstætt og ánægjulegt var að setningin: "við hefðum bara ekki mátt vera fleiri" heyrðist hvívetna úr broshýrum andlitum iðkenda í lok dagskrár.
Á meðfylgjandi mynd má sjá fjöldan allan af HK-ingum sem dreif á völlinn til að styðja sína Heldri-menn, og um leið hita upp fyrir stórslaginn á Kópavogsvelli í kvöld, Breiðablik - HK (beint á Sýn)
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2007 | 14:51
"Ég er of þungur!"
Hreiðar Þór Jónsson varnarmaður Puma sagði eftir leik Puma og Dynamo Gym80 að hann hefði ekki verið sáttur við frammistöðu sína. Trekk í trekk náðu sóknarmenn Dynamo að stinga Hreiðar af og komast inn fyrir vörn Puma.
Málið er einfaldlega þannig að ég þarf að létta mig um svona 10 kíló, þá verð ég orðinn góður. Ég hef verið að bæta grimmt á mig eftir að ég byrjaði sem vörumerkjastjóri bjórsins hjá Vífilfelli. Ég einfaldlega get ekki látið undan að drekka allan þennan bjór sem er í gangi. sagði Hreiðar við ritstjórnarfulltrúa í dag.
Ritstjórn Puma.blog.is náði í einn af þjálfurum Puma í hádeginu í dag og sagði hann, Þjálfarateymi klúbbsins er þegar búið að setja sig inn í mál Hreiðars. Hann er nú komin í stíft prógramm sem byggist upp á því helst að létta kauða sem og styrkja.
Hreiðar sem sem er á sínu áttunda tímabili hjá Puma verður því að taka sig taki og vinna með þjálfarateymi liðsins ef hann ætlar að halda stöðu sinni í varnarlínu Puma á tímabilinu.
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.6.2007 | 14:04
Viðar sáttur við sigurinn
Ljóst er að aðfærslur Viðars Inga í vikunni við val á byrjunarliði hafa náð eyrum framkvæmdastjórans. Leikmaðurinn með ljónshjartað hóf leik á hægri vængnum í sigrinum á Dinamo. Hann var þó fyrsti maður til að brjóta odd af oflæti sínu og skipta við liðsfélaga sína á bekknum, öðrum til fyrirmyndar. Greinilegt er að Viðar lætur mótlæti og gagnrýni sem vind um eyru þjóta, og metur mikilvægi liðsins ofar einstaklingnum. Batnandi mönnum er best að lifa.
Stjórinn hafði m.a. þetta að segja um leikmanninn á blaðamannafundi eftir leikinn: Eins og ég hef tekið fram áður er Viðar sterklega inn í plönum klúbbsins, hann byrjaði þennan leik og stóð sig með prýði, eins og raunar allt liðið. Vissulega var hópurinn frekar þunnskipaður samanborið við fyrstu tvo leikina og gott að geta leitað til jafn leikreynds leikmanns til að standa vaktina. Hann þreyttist reyndar eftir sem á leið, en ég held og vona að hann verði vaxandi leikmaður fyrir okkur á leiktíðinni.
Að beiðni stjórnar vill ritstjórn einnig nota tækifærið og minna á æfingu í Fagralundi í kvöld kl. 21:30. Fjölmennum og fögnum taplausri byrjun með total football og teygjum.
- Ritstjórn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)