22.5.2008 | 09:37
Bikar á sunnudag
Fyrsti leikur Puma í bikarnum er á næstkomandi sunnudag. Tekur Puma á móti nýliðum í deildinni, liðinu KWS. Lítið er vitað um lið KWS og ekki náðist í Sveinn, einn af umsjónarmönnum liðsins við vinnslu fréttarinnar.
Eftir ófarir Puma í fyrsta leik í deildinni verða leikmenn og stjórnendateymi að taka sig til í andlitinu, því ósættanlegt væri ef liðið félli úr bikarnum í fyrstu umverð.
Framkvæmdarstjórn Puma hefur beðið um að koma eftirfarandi á framfæri: "Leikurinn verður háður á Framvelli í Safamýri og hefst leikurinn klukkan 18:00. Því mæta leikmenn klukkan 17:00."
- Ritstjórn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.