21.4.2008 | 16:25
Æfingar á mánudögum í sumar.
Með hækkandi sól og og hita fara Púmurnar undir bert loft. Þar af leiðandi viljum við ítreka breyttan æfingartíma og stað. Framvegis verða æfingar haldnar í Fagralundi kl. 20 á mánudögum. Hvetjum alla til að mæta vel og reglulega. Frábærar aðstæður + kyngimagnaður félagsskapur = Sólarsamba !
Fyrir þá sem ekki vita (neitt), er Fagrilundur æfingasvæði HK í Fossvogi, Kópavogsmegin við Snælandsskóla
Komdu í Kópavoginn kútur
knattspyrnu að leika.
..og botnaðu nú ! (verðlaun í boði)
- Framkvæmdastjórn
Athugasemdir
Haltu þig hægan hrútur,
hlægjandi að breika.
Ingi Tandri (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 19:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.