29.1.2008 | 14:35
Að vanda.....
...æfing í Kórnum Kópavogi í kvöld kl. 21:00. Góð mæting hefur verið að undanförnu og spilaður hefur verið skemmtileg knattspyrna.
Gríðarleg stemmning er komin í stigaleik Puma, þar sem menn fá stig fyrir mætingar og sigra á æfingum. Staðan eftir þrjár æfingar er þannig að Jón Helgi, hin gríðarsnöggi, lipri og hnyttni varnar/kant/miðju/drottnandi/vængmaður trónir á toppnum með 12 stig. Staða efstu 10 manna sjáum við hér:
Mæting | Sigur | Mætingarhlutfall | Sigurhlutfall | Samtals stig | |
Jón Helgi | 3 | 9 | 100% | 100% | 12 |
Haukur | 3 | 6 | 100% | 67% | 9 |
Már J. | 3 | 6 | 100% | 67% | 9 |
Arnar | 3 | 6 | 100% | 67% | 9 |
Hreiðar | 3 | 6 | 100% | 67% | 9 |
Gunni | 2 | 6 | 67% | 67% | 8 |
Árni | 3 | 3 | 100% | 33% | 6 |
Viddi | 3 | 3 | 100% | 33% | 6 |
Benni | 3 | 3 | 100% | 33% | 6 |
Þórólfur | 2 | 3 | 67% | 33% | 5 |
Reikna má með spennandi bolta í kvöld þar sem ljóst er að fjórir leikmenn geta komist á toppinn ef Jón Helgi misstígur sig.
- Nefndin
Athugasemdir
Þetta er náttúrulega ekki hægt dómari ! það var ójafnt skipt í lið síðast, 6 vs. 7 ! reglan verður að vera sú að oddamaður skiptir um lið í hálfleik
VIP (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 15:18
Sælir,
Jú ég misstíg mig nú þar sem ég kemst ekki í kvöld, er ekki 1 stig fyrir að tilkynna forföll? ;)
kv. JónHelgi
Jón Helgi (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 15:27
Eitt stig til viðbótar á Jón Helga = 13 stig.
Það marg borgar sig að tilkynna forföll.
-Nefndin
Ritstjórn Puma , 29.1.2008 kl. 16:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.